Kór Fella- og Hólakirkju
The Choir of Fella- og HólakirkjaGuðríður St. Sigurðardóttir, píanó
Guðríður St.Sigurðardóttir hefur verið virk í tónlistarflutningi hér heima og erlendis í rúma þrjá áratugi. Hún hefur komið fram sem einleikari og sem píanóleikari með ýmsum hljóðfæraleikurum, söngvurum og kórum og leikið með ýmsum tónlistarhópum og hljómsveitum. Guðríður lauk einleikaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík og mastersgráðu í píanóleik frá háskólanum í Michigan í Ann Arbor. Síðar sótti hún einkatíma í píanóleik í Köln í Þýskalandi og hefur auk þess sótt ýmis námskeið. Jafnframt tónleikahaldi stundar Guðríður tónlistarkennslu. Hún lauk MBA námi í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands vorið 2007.
Gudridur (Gurry) Sigurdardottir has been performing actively in Iceland and abroad for over three decades. She has appeared as soloist, as pianist with instrumentalists, singers and choirs and has been part of various music groups and orchestras. Gurry graduated from the Reykjavik College of Music and received her master’s degree in Piano Performance from the University of Michigan, Ann Arbor. She subsequently studied privately in Cologne, Germany and participated in numerous masterclasses. As well as performing, Gurry teaches piano. She received an MBA degree from the University of Iceland in 2007.