Kór Fella- og Hólakirkju
The Choir of Fella- og HólakirkjaGuðný Einarsdóttir, stjórnandi/conductor
Guðný Einarsdóttir stundaði píanónám frá unga aldri og lauk hún prófi frá tónmenntakennaradeild Tónlistarskólans í Reykjavík og orgelnámi frá Tónskóla Þjóðkirkjunnar, þar sem aðalkennari hennar var Marteinn H. Friðriksson.
Vorið 2006 lauk hún kirkjutónlistarnámi frá Det Kongelige Danske Musikkonservatorium í Kaupmannahöfn þar sem hún naut leiðsagnar ýmissa kennara m.a. Lasse Ewerlöf og Bine Bryndorf. Samhliða náminu var hún annar organisti við Holmens kirkju í Kaupmannahöfn. Veturinn 2006-2007 var Guðný organisti við kirkju danska safnaðarins í París en samhliða starfinu stundaði hún nám hjá frönsku organistunum Eric Lebrun og Sophie-Véronique Cauchefer-Choplin. Hún hefur einnig sótt orgelnámskeið hjá mörgum af virtustu tónlistarmönnum samtímans m.a. Michael Radulescu, Hans-Ola Ericson og Olivier Latry.
Á námsárum sínum stjórnaði Guðný kammerkórnum Stöku í Kaupmannahöfn en hún var jafnframt ein af stofnendum hans. Guðný hefur haldið tónleika bæði á Íslandi og erlendis og komið fram við ýmis tilefni, bæði sem einleikari, meðleikari og kórstjóri. Hún gegnir nú stöðu organista við Fella- og Hólakirkju í Reykjavík.
Guðný Einarsdóttir graduated from the department of musical education at the Reykjavík College of Music having begun studying the piano at a young age. She graduated as an organist from the Music School of the National Church in Iceland where she studied under Marteinn H. Friðriksson.
Guðný studied church music at the Danish Royal Academy for Music in Copenhagen, where Lasse Ewerlöf and Bine Bryndorf among others were her teachers. She graduated in spring of 2006. During her studies she was the second organist of Holmens Kirke in Copenhagen. From 2006 to 2007 she was the organist at the church of the Danish congregation in Paris and studied with Eric Lebrun and Sophie-Véronique Cauchefer-Choplin. She has also attended masterclasses and various courses with many of the world’s renowned musicians, Michael Radulescu, Hans-Ola Ericson and Olivier Latry among others.
While studying in Copenhagen Guðný co-founded and conducted the chamber choir Staka. She has given many concerts at home and abroad and performed as a soloist, accompanist and conductor. She is now the resident organist at Fella- og Hólakirkja in Reykjavík.